Táknmálsþýðing
Um kosningarrétt og kjörskrá fer á sama hátt og við alþingiskosningar. Þó skulu kjörskrár miðaðar við íbúaskrá þjóðskrár þremur vikum fyrir kjördag og liggja frammi hjá sveitarstjórnum í heila viku fyrir kjördag.
Mörk kjördæma, kjörstaðir og kjördeildir eru þær sömu og í síðastliðnum alþingiskosningum. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst fimmtudaginn 28. janúar 2010.
Um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar gilda lög nr. 4/2010. Nánari upplýsingar um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar eru á vefnum www.kosning.is.